Að sleppa

 

Vá,hvað það er erfitt að sleppa !

Hef ekki heyrt í syninum í 5 daga!

Skellti þá á hann !

Frétti svo sama  dag  að hann,ásamt öðrum væri á leið til útlanda !

 

Þá fór mín heim til vinar hans,þangað sem að minn hafði flutt til 2 dögum áður og náði í föt hans,sæng og kodda.

Ég  bara gerði þetta án þess að hugsa og án þess að fá lánaða dómgreind og afsakaði mig svo með því að ég hafi verið að hlífa kærustu vinar sonar míns og lika að ég hafi verið að reyna að stoppa það að sonur minn færi til útlanda..,

þarna kemur stjórnsemin og meðvirknin kæru vinir...

Ég fékk góða heimsókn áðan,móðir vinar hans Andra kom.

Sonur hennar og Andri eru búnir að vera í neyslu saman síðustu daga og hún heyrir reglulega í sínum,en ekkert spyrst af Andra..Frown

(Mér nefnilega dettur það ekki í hug,að hringja í hann,eða í hans vini... en er samt að deyja úr áhyggjum .)

Ég er að  reyna að sleppa og vera ekki meðvirk,en er Andri í útlöndum eða ????

Lifið heil og góða nótt

Guðrún

kærleikskveðjur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband